…
Yndið mitt hún Elma Rós – átti 2 ára afmæli í gær!
Hún var ekkert lítið hamingjusöm með daginn ..

.. og leit, á köflum, út eins og hún væri á samkomu hjá Krossinum – sérstaklega þegar Baby Born dúkkan og dúkkuvagninn leyndust í einu pakkanum!
Ég veit ekki hvar ég væri án hennar ..
.. það er ekki hægt að hugsa sér neitt betra!
Vonandi áttuði öll góða helgi ..
.. knús
x x x
…

Sjáiði hvað hún Katalina var ánægð með kossinn frá mér!
.. alveg hreint dásamleg upplifun – kyssa, knúsa og leika við þetta magnaða dýr – og svo fór hún líka með mig rúnt á bakinu!
Discovery Cover er frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna – EKKI láta það framhjá þér fara, ef þú ferð til Orlando!
x x x
…
![422414_268629583214398_100002020755067_637177_1960127857_n[1]](http://manuelaosk.com/wp-content/uploads/2012/03/422414_268629583214398_100002020755067_637177_1960127857_n1-300x300.jpg)
Svona var maður nú flottur, svamlandi með höfrungakrúttum ..
.. svo fékk ég líka að gefa einum koss – beint á nebbann (munninn?) .. þið fattið …
-
Sem sagt, komin heim – blogga á morgun – er að bugast af þreytu!
Love
x x x
Posted from my iPhone
…

Gleðilegan Valentínusardag!
… amerískt og allt það – en mér finnst gaman að fá tækifæri til að gera mér og mínum glaðan dag!
x x x
…

Jesús krilli – það var svo ógeðslega óeðlilega ótrúlega ó svo gaman hjá mér um helgina!
.. ég á skemmtilegar vinkonur – það er ekki hægt að segja neitt annað … nema jú, skemmtilegar, fallegar og fyndnar vinkonur!!
Í þessum skrifuðu orðum sit ég hálflömuð uppí sófa – ennþá að jafna mig eftir gærdaginn – þar sem við vinkonurnar gæsuðum eina af mínum allra bestu, Berglindi Óskarsdóttur – en hún ætlar að giftast honum Bóbó sínum í Frakklandi seinna í sumar!
Ég táraðist í gæsuninni …
.. ég mun hágrenja í brúðkaupinu!
x x x
…

-
Ég er að fá yndislega, fallega og ofurskemmtilega dömu í helgarheimsókn …
… það stefnir því í mjög góða helgi!
Love
x x x